top of page

 

Hver er Andri ?

Tími lýtaskurðlæknis er takmarkaður, en samt er lykilatriði fyrir aðgerð að einstaklingurinn fái svör við öllum spurningum í fyrsta, og kannski eina viðtalinu.

​Góðir lýtaskurðlæknar gera allt til að fræða þig eins og þarf fyrir aðgerðina, svo að þú vitir hvað þú vilt gera og hver á að hjálpa þér með það.

Ef þú vilt koma til okkar aftur með fleiri spurningar, þá kemur þú bara aftur. Þá geturðu hitt lýtaskurðlækninn til að mynda þér endanlega skoðun. Að hitta hann, aftur, er þér að kostnaðarlausu. Við viljum vera  viss að þú hafir allt á hreinu áður en þú leggst á skurðarborðið.

Andri Már Þórarinsson er lýtaskurðlæknir með yfir 20 ára reynslu af lýtaskurðaðgerðum og fjölmörgum öðrum skurðaðgerðum. Hann útskrifaðist árið 2000 úr Læknadeild Háskóla Íslands, starfaði sem ungur læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Heilsugæslustöðinni á Akureyri og svo á Skurðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss. Eftir þetta hélt hann til Svíþjóðar, þar sem hann sérmenntaði sig í lýtaskurðlækningum og smásjárskurðlækningum

Eftir að hafa skrifað undir læknaeiðinn, fluttist hann árið 2004 til framhaldsnáms í lýtaskurðlækningum við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg.

Á öllum þessum árum framkvæmdi hann og stjórnaði einhverjum þúsundum lýtaskurðaðgerða af ýmsu tagi. Meðfram þessu starfaði hann í hlutastarfi á stórri einkarekinni stofu í Gautaborg, ArtClinic, með fegrunarlækningar sem sérsvið.

Nýlega flutti Andri heim og vann í fullu starfi við Lýtaskurðdeild Landspítalans. Nú starfar hann á Læknastofum Reykjavíkur þar sem hann framkvæmir allar almennar lýtaaðgerðir og fegrunaraðgerðir.

Hjá Andra ertu í höndunum á þrautreyndum sérfræðingi í lýtaskurðlækningum sem á eftir að fylgja þér gegnum allt ferlið, frá fyrstu heimsókn, þar til öll skurðsár eru gróin, og að lokum samtal þar sem farið er yfir árangurinn af aðgerðinni miðað við væntingarnar.

Markmið okkar er að þú verðir ánægð/ur með aðgerðina þína og að í hverju tilfelli sé raunhæfum markmiðum náð, með tilliti til þeirra forsendna sem þú hefur og er farið vel yfir í fyrsta viðtali.

Andri Már Þórarinsson

Andri hefur verið virkur í rannsóknum í sérgrein sinni.  Hann hefur birt fjölda vísindagreina í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum, og haldið alþjóðlega fyrirlestra, allt frá Chile í suðri til Umeå í Norðursvíþjóð í norðri. 

Meðfram starfi hefur Andri tekið mikið þátt í alþjóðlegu félagsstarfi lýtalækna. Hann situr eða hefur setið í stjórnum Alþjóðasamtaka lýtaskurðlækna, Skurðlæknafélags Íslands, Skurðlæknafélags Norðurlanda, Smásjárskurðlækna í Svíþjóð, Heimssamtaka smásjárskurðlækna og Samtaka smásjárskurðlækna í Evrópu með meiru.

​

Árið 2017 varði hann doktorsritgerð sína við Gautaborgarháskóla sem fjallar um brjóstauppbyggingar eftir brjóstakrabbamein og heilsutengd lífsgæði þar að lútandi. Hún kom út á bók árið 2017, gefin út af Lambert útgáfunni sem sérhæfir sig í útgáfu á vísindaefni. Hægt er að kaupa bókina á Amazon: (https://www.amazon.com/Breast-reconstructions-factors-complications-Clinical/dp/6202075724). Hún er mögulega enginn yndislestur, en gefur innsýn í mismundandi aðferðir til brjóstauppbygginga eftir krabbamein, það sem þarf að varast, og hvenær brjóstauppbygging skilar bata í heilsutengdum lífsgæðum.

bottom of page