top of page

Svuntuaðgerð

Nú er svuntuaðgerðin þín búin. Þetta er sennilega stærsta aðgerðin sem hægt er að gera hjá lýtalækni utan sjúkrahúsa. Og það á eftir að taka þig svolítinn tíma að jafna þig

Leiðbeiningar eftir svuntuaðgerð

  1. Skurðir þínir hafa umbúðir í tveimur lögum. Innst eru þunnir plástrar og utaná eru umbúðapúðar sem taka við þeim fáu blóðdropum sem sjást á fyrsta sólarhring eftir aðgerð. Eftir 2-3 daga má taka burt magabeltið og ytri umbúðirnar, en þær innri (teipið) á að sitja á sínum stað fram að endurkomutímanum sem bókaður hefur verið.

  2. Drenin sem þú fékkst í aðgerðinni eru dregin 1-4 dögum eftir aðgerð af lýtaskurðlækni eða reyndum hjúkrunarfræðingi.

  3. Teipið þolir vatn, svo á þriðja degi skaltu fara í sturtu eftir að hafa fjarlægt umbúðapúðana (ytri umbúðirnar) og magabeltið. Góð sturta fækkar bakteríum á húðinni, og minnkar því líkur á sýkingu. Eftir sturtuna geturðu þurrkað teipið með hárþurrku og sett svo á þig magabeltið aftur.

  4. Magabeltið sem við mælum með er Marena, tvískipt (konur) eða þrískipt (karlar), sem fæst hjá Fastus (www.fastus.is) – sjá mynd hér neðan. Þau koma í mismunandi stærðum og bæði fyrir konur og karla. Magabeltin eiga að ná frá rifbeinsboga niður á lífbeinið. Mundu að hægt er að klippa til beltið þannig að það passi þér sem best, hvort sem um er að ræða þrískipt eða tvískipt. Þú skalt hafa það allan sólarhringinn fyrstu fjórar vikurnar, og að degi til næstu fjórar. Eftir þetta tímabil skaltu hætta að nota það vegna hættu á bakvandræðum sem koma af slöppum bakvöðvum. Ágætt er að eiga tvö magabelti, svo auðvelt sé að þvo þau.

  5. Farðu vel með þig vikurnar eftir aðgerð. Ráðlegt er að sleppa vinnu í 2-3 vikur eftir aðgerðina. Þú skalt vera á fótum, en forðast alla líkamlega áreynslu fyrr en allt er gróið og bólgan hefur að mestu horfið.

  6. Endurkomutíminn er bókaður eftir ca. viku. Í honum athugum við hvort gróandinn í skurðunum sé eðlilegur og gætum að sýkingareinkennum. Ekki er ráðlegt að sleppa þessum tíma, sama þó allir saumar séu undir húðinni og þér líði vel.

  7. Í um það bil helmingi tilvika safnast svolítill vökvi saman undir húðinni á skurðsvæðinu., svokallað seroma. Þetta er eðlilegt, og vökvinn hverfur á örfáum vikum. Einungis er stungið og tappað af þessum vökva í undartekningartilfellum vegna sýkingarhættu.

  8. Ef skyndilega tekur að vessa úr einhverjum skurði, það myndast roði og verkur, eða þú færð hita skaltu hafa samband við Andra. Fremur auðvelt er að greina mögulega sýkingu gegnum síma (ljósmyndir / video). Ef þörf krefur kallar Andri þig til skoðunar á stofu og ávísar sýklalyfjum. Þér verður svo fylgt eftir þar til sýkingin er horfin. Vinsamlegast athugið að sýklalyf eru aldrei gefin fyrirbyggjandi, það eykur bara líkurnar á að rækta fram ónæmar bakteríur.

    9. Ef í nauðirnar rekur má senda             SMS eða hringja beint í Andra:               853 5403

   10. Mundu að endanlegur árangur              aðgerðarinnar kemur ekki í ljós              fyrr en að minnsta kosti 6                      mánuðir hafa liðið frá                              aðgerðardegi.

Magabelti eftir svuntuaðgerð
Lýtalæknir
bottom of page