top of page
Lýtalæknir
  1. Skurðir þínir hafa umbúðir í tveimur lögum. Innst eru þunnir plástrar og utaná eru umbúðapúðar sem taka við þeim fáu blóðdropum sem sjást á fyrsta sólarhring eftir aðgerð.

  2. Eftir 2-3 daga má taka burt ytri umbúðirnar, en þær innri (teipið) á að sitja á sínum stað fram að endurkomu

  3. Teipið þolir vatn, svo á þriðja degi skaltu fara í sturtu eftir að hafa fjarlægt umbúðapúðann (ytri umbúðirnar). Góð sturta fækkar bakteríum á húðinni, og minnkar því líkur á sýkingu. Eftir sturtuna geturðu þurrkað teipið með hárþurrku og svo geturðu farið aftur í brjóstahaldarann.

  4. Brjóstahaldarinn sem við mælum Marena B2 sem fæst hjá Fastus, Síðumúla 16 (www.fastus.is) Hann er gerður fyrir konur sem eru nýkomnar úr brjóstaaðgerð, heldur vel við og er þægilegur fyrir flestar konur.

  5. Þú skalt vera í brjóstahaldaranum allan sólarhringinn fyrstu þrjár vikurnar, og að degi til næstu þrjár. Eftir þetta tímabil geturðu gert eins og þú vilt.

  6. Ágætt er að eiga tvo brjóstahaldara, svo auðvelt sé að þvo þá.

  7. Farðu varlega með þig vikurnar eftir aðgerð. Þú skalt vera á fótum, en forðast alla líkamlega áreynslu fyrr en allt er gróið og bólgan hefur sest. Tvisvar á dag skaltu gera þær æfingar sem þú færð á meðfylgjandi blað

  8. Endurkomutíminn til Andra er bókaður eftir ca. viku. Í honum athugum við hvort gróandinn í skurðunum sé eðlilegur og gætum að sýkingareinkennum. Ekki er ráðlegt að sleppa þessum tíma, sama þótt allir saumar séu undir húðinni.

  9. Ef skyndilega tekur að vessa úr einhverjum skurði, það myndast roði og verkur, eða þú færð hita skaltu hafa samband við Andra.

  10. Fremur auðvelt er að greina mögulega sýkingu gegnum síma (ljósmyndir / video). Ef þörf krefur kallar Andri þig til skoðunar á stofu og ávísar sýklalyfjum. Þér verður svo fylgt eftir þar til sýkingin er horfin.

  11. Vinsamlegast athugið að sýklalyf eru aldrei gefin fyrirbyggjandi, það eykur bara líkurnar á að rækta fram ónæmar bakteríur.

  12. Ef í nauðirnar rekur má senda SMS eða hringja beint í Andra: 853 5403.

  13. Mundu að endanlegur árangur aðgerðarinnar kemur ekki í ljós fyrr en að minnsta kosti 9 mánuðir hafa liðið frá aðgerðardegi og því ómögulegt að ræða útlit brjóstanna fyrr en sá tími er liðinn.

Leiðbeiningar eftir brjóstalyftingu

bottom of page