top of page

Aðgerð vegna gynecomastiu

Nú er aðgerðin við gynecomastiu búin. Þú fórst bæði í gegnum fitusog á brjóstasvæðinu og brottnám á kirtilvef. Hér koma nokkur ráð hvernig best er að haga lífinu á næstunni

Lýtalæknir

Leiðbeiningar eftir aðgerð - Gynecomastia - fitusog og brottnám á brjóstvef

  1. Ef þú hefur fengið dren er það dregið daginn eftir undir venjulegum kringumstæðum.

  2. Skurðir þínir hafa umbúðir í tveimur lögum. Innst eru þunnir plástrar (skurðlæknateip) og utaná eru umbúðapúðar sem taka við þeim fáu blóðdropum sem sjást á fyrsta sólarhring eftir aðgerð. Eftir 2-3 daga má taka burt ytri umbúðirnar, en þær innri (teipið) á að sitja á sínum stað fram að endurkomutímanum sem bókaður hefur verið.

  3. Teipið þolir vatn, svo á þriðja degi skaltu fara í sturtu eftir að hafa fjarlægt umbúðapúðana (ytri umbúðirnar). Góð sturta fækkar bakteríum á húðinni, og minnkar því líkur á sýkingu. Eftir sturtuna geturðu þurrkað teipið með hárþurrku. Það er misskilningur að ekki megi koma vatn á nýja skurði. Íslenskt vatn og fljótandi sápa gera ekkert nema gagn til að hindra sýkingu.

  4. Farðu vel með þig vikurnar eftir aðgerð. Misjafnt er hversu lengi er ráðlegt að sleppa vinnu. Þú finnur sjálfur hvenær þú ert tilbúinn. Þú skalt forðast alla líkamlega áreynslu fyrr en allt er gróið og bólgan hefur að mestu horfið.

  5. Strax eftir aðgerðina ferðu í stuðningsvestið sem verður þinn besti vinur í nokkrar vikur. Svona vesti fást á ýmsum stöðum en ein góð tegund fæst hjá Fastus (www.fastus.is). Það er kallað Marena aðgerðarvesti stutt (https://fastus.is/marena-a%C3%B0ger%C3%B0arvesti-stutt-unisex-maremvs-s-h).

  6. Stuðningsvestið skaltu hafa allan sólarhringinn í 4 vikur, eftir það að degi til í 4 vikur. Síðan máttu sleppa því

  7. Endurkomutíminn er yfirleitt bókaður eftir ca. viku. Í honum athugum við hvort gróandinn í skurðunum sé eðlilegur og gætum að sýkingareinkennum. Ekki er ráðlegt að sleppa þessum tíma, sama þó allir saumar séu undir húðinni og þér líði vel. 

  8. Ef skyndilega tekur að vessa úr einhverjum skurði, það myndast roði og verkur, eða þú færð hita skaltu hafa samband við Andra. Fremur auðvelt er að greina mögulega sýkingu gegnum síma (myndir / myndskeið). Ef þörf krefur kallar Andri þig til skoðunar á stofu og ávísar sýklalyfjum. Þér verður svo fylgt eftir þar til sýkingin er horfin. Vinsamlegast athugið að sýklalyf eru aldrei gefin fyrirbyggjandi, það eykur bara líkurnar á að rækta fram ónæmar bakteríur. 

  9. ​Eftir að allt er gróið mælum við með að haft sé skurðlæknateip (Mepore) á örinu í hið minnsta 6 mánuði

   10. Þegar um 3 vikur hafa liðið frá aðgerðinni skaltu                nudda aðgerðarsvæðið 2 sinnum 10 mínútur                      daglega. Þetta er gert til að jafna út örvefinn sem                óhjákvæmilega myndast.

   11. Ef í nauðirnar rekur má senda SMS eða hringja beint     í Andra: 853 5403

   12. Mundu að endanlegur árangur aðgerðarinnar kemur     ekki í ljós fyrr en að minnsta kosti 9 mánuðir hafa liðið       frá aðgerðardegi.

Gynecomastia
bottom of page